Time for something ...

Er eitthvað sem meikar sens....??

þankar mínir...

Mínir þankar.....

25.12.2009

Jóla jóla ..

Aðfangadagur rann upp í gær og þetta var yndislegt. Við pabbi og Bjössi fórum í garðinn með kerti og greinar og  þau komu í mat og jólapakka eins og vanalega og áttum við notalega kvöldstund.



Jólasteikin var hamborgarhryggur as usual og svo elduðum við smá lambakjöt handa Mikkanum því honum hefur aldrei þótt jólamaturinn góður :)

Hér flæddu gjafir og góss út um allt og allir sælir og glaðir ....þegar pabbi og þau fóru settum við myndina um Benjamín Button í sem Alli gaf okkur í jólagjöf og góndum á hana ...



Þetta er hún Gigi ....hún er besta kona sem ég hef á ævinni kynnst og mér þykir ofur vænt um hana ...



Við pabbi og Bjössi ...dregurinn er bráðhuggulegur eins og systir sín :)

Við fórum í hangikjöt áðan til pabba og þeirra ....tókum Örnu  tengdadóttur okkar með :) Nú liggjum við bara í leti,étum konfekt og óhollustu en við Magga ætlum að dröslast í ræktina á morgun :)

Gleðileg jól gott fólk og ég kveð ykkur í kútinn ..

Inda ...

Skrifað 25.12.2009 kl. 16:07 af Dekurbarnið

Bein slóð á færslu

5 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

14.12.2009

Íhaaaa

Prófin búin ......sjæs hvað ég er feginn!! Fór í stæ í dag og það verður að koma í ljós hvernig það fer ...en ég náði enskunni og Íslensku með yfir 7 svo ég er sátt!

Annars er bara búið að vera svo crazý að gera að maður hefur varla náð andanum ....líka að reyna stunda smá félagslíf ....við aðra en koddann og Möggu :) Fór út að borða í síðustu viku með nokkrum Óskabörnum og konum þeirra .....rosa gaman!

Svo skrapp ég á jólaballið á laugardaginn, stoppaði ekki lengi því Inda átti stæ tíma morguninn eftir ...

Sennilega verður einhver bið í að ég fái röddina ....þar að segja ef ég fæ hana :/ En það á eitthvað að hræra en eina ferðina í lyfjunum og nýjasta uppástungan er að senda mig í aðgerð ....ég veit ekki - líst ekki á það! Fer yfir þessi mál með Dr Tauga eftir áramót!

En ætli maður þurfi ekki að fara huga að jólunum :/ Kannski ryksuga kofann, skúra og þurrka af í tilefni þess að það er korter í jól *dæs* er svo ekki að nenna þessum jólum!!

En á morgun ætla ég á deit við Möggu á þrekstiganum .....vóts hvað það verður gaman!!:)

En ég er ósköp andlaus ...

Kveð ykkur í kútinn ..

Inda

Skrifað 14.12.2009 kl. 19:08 af Dekurbarnið

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

2.12.2009

Á deit við dr Tauga

Ekki get ég sagt að deitið hafið gengið vel - eða ég sé sátt við niðurstöður fundar okkar dr Tauga . . . Botoxið sem ég fékk í kokið fyrir rétt tæpum mánuði síðan er en að leika mig grátt á því sviði að það er ekki að virka sem skyldi og ég er ennþá raddlaus og meiri likur en minni að röddin lagist ekki . . . vúhúú 2 mánuðir í raddleysi í viðbót ...ef þetta er ekki öfundsvert þá veit ég ekki hvað er það ekki! Ekki bara raddleysi heldur líka algjört samhæfingarleysi á milli tals og öndunar ....sem þýðir að þessu fylgir öföndun og kvillar sem fylgja því eins og máttleysi, doði og uppgjöf!

Ég labbaði út af LSP í dag meðgrátstafinn í kverkunum því ég vogaði mér að spyrja um framhaldið .....og ég fékk engin svör - önnur en þau að ég yrði að læra slökun til að koma í veg fyrir öföndunarástand *MIG LANGAR EKKI AÐ LÆRA SLÖKUN* En þau voru þá allavega hreinskilin við mig og ljúga ekki að mér!

Annars er ég bara að reyna komast af dag frá degi ....rembist í gegnum hvern dag og nú eru prófin að fara byrja svo ég þarf taka á honum stóra mínum ef ég ætla að þrauka þau . . .

Kveð ykkur í kútinn ..

Inda

Skrifað 2.12.2009 kl. 19:42 af Dekurbarnið

Bein slóð á færslu

8 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

2.12.2009

Ekki hætt

Skoða nánar

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 10
Gestir í dag: 6
Flettingar í gær: 116
Gestir í gær: 26
Samtals flettingar: 368933
Samtals gestir: 109118
Tölur uppfærðar: 19.3.2010 03:43:38

Vafraðu um

Ertu mús eða maður ?

 Mús

 maður

 kona - ég get allt


Sýna niðurstöður

Um mig

Nafn:

Dekurbarnið ...

Afmælisdagur:

29 febrúar....

Heimilisfang:

Vesturbærinn...flyt vonandi í Skagafjörðinn.

Staðsetning:

Reykjavík City...

Faðir:

Alexander...

Móðir:

Hrafnhildur...

MySpace vefsíða:

myspace.com/1450cc

Um:

Ég er ágæt ...

Uppáhalds bíómynd(ir):

Forrest Gump ..

Uppáhalds manneskjur:

Baddi minn ...

Uppáhalds matur:

Hæna ....

Tenglar

eXTReMe Tracker