Time for something ...

Er eitthvað sem meikar sens....??

þankar mínir...

Mínir þankar.....

31.5.2009

Hvítasunnuútilegan ...

Þá er Hvítasunnuútilegu ÓÓ afstaðin ...hér á myndinni má sjá Mikkann minn þeysast á nöðrunni ...stráksi er orðin ansi flinkur á hjólinu :)

Feðgarnir ....Óinn fékk að setjast í smá stund hjá pabba sínum þegar hann kom :)

Alli tók nýja crossarann með sér ...en varð fyrir því óláni að festa sig í fjörunni og týndi bolta ...hann hjólaði ekki meira ...kærustunni sennilega til mikillar gleði ...en Arna tengdadóttir mín kom með í útileguna :) En í þessu tilfelli var gott að eiga vini sem eiga pikkup því Danskurinn og Frikki gamli fóru í björgunarleiðangur niður í fjöru til að sækja stráksa og hjólið ...
 
Magga kom náttúrulega í smá stund og ég mátti til með að taka mynd af þessu andartaki :) Svo sætar þessar vinkonur mínar :)

Annars er helgin búin að vera nokkuð góð ...við fórum í gær í Þykkvabæinn og gerðum okkur glaðan dag ....átum grill og hlýddum á manninn minn, Sifina mína og Metalinn syngja og glamra á hljóðfæri ...voða gaman :)

Á morgun verður það enginn miskun ...í ræktina ætla ég að mæta galvösk - ætla að vera dugleg að hreyfa mig þar til ég leggst inn á sjúkrahús ...

Við hjónin erum að velta fyrir okkur hvað við eigum að gera í dekkjarmálum á hjólunum okkar ....svona þar sem við erum að fara til Færeyja ...það er ekki gott að fara á hálfslitnum dekkjum :/ sennilega endum við á að kaupa ný undir hjólin og geymum gömlu þar til nýju eru búin ....ég er ekki tilbúin að koma aftur til Íslands ...note bene á Seyðisfjörð og eiga 700 km eftir á dekkjum komin niður í striga ...þurfum að finna út úr þessu ...

Annars allt við það sama ....nema að Svanfríður frænka er á landinu og mig hlakkar óskaplega til að hitta hana :)

Kveð ykkur í kútinn ..

Inda

Skrifað 31.5.2009 kl. 22:36 af Dekurbarnið

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

28.5.2009

það fór sem fór . .

Gærdagurinn var nokkuð góður ...Margrét litla P. Hanna kom til mín og tókum góða spjallrispu ....svo rosalega að ég missti röddina og hef ekki fundið hana aftur. En óskaplega var nú gott að setjast niður með Margréti í smá tjatt :)

Nú fer að líða að Hvítasunnuhelginni og þá er stefnan tekinn á Þykkvabæinn . . . ég vona að ég verði búin að fá röddina :/ Annars verður bara að hafa það ...

Svanfríður frænka er komin til landsins ...hlakka mikið til að hitta hana :)

Í fyrramálið er það svo ræktin með Möggu og Sylvíu ....það verður fjör like always :)

En ég er búin að fá fingurinn greiddann og ekki get ég sagt að hann hafi verið verðmætur .....þannig passið á ykkur fingurnar ...þeir eru ekki dýrir á stuðli tryggingafélaganna . . .

Mér líst ekki á blikuna ..það er kvefskítur farin að hreiðra um sig í strákunum ...sem þýðir að ég þarf að hafa samband við heimilislækninn minn í fyrramálið til að fá einhver flensulyf . . því ef ég verð veik þá kemst ég ekki í aðgerðina í næstu viku og þá frestast hún fram á haustið og það gengur ekki . . .

Annars er í raun fátt títt ....og engar fréttir eru betri en slæmar svo ég kveð ykkur í kútinn þar til næst ..

Inda

Skrifað 28.5.2009 kl. 20:25 af Dekurbarnið

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

26.5.2009

Blíðan . .

Ég var svo úldin þegar ég vaknaði í morgun að mig langaði mest til að skríða uop í fleti aftur og breiða yfir haus ....en þar sem ég átti deit við stelpurnar í morgun haskaði ég mér á fætur og fór í ræktina ...

Kl 11:30 var svo sjúkraþjálfun og loks í dag komst ég í skoðun hjá Finnboga taugalækni og Önnu háls, nef og eyrna lækni . . úr varð að ég þarf í aðgerð og fer í næstu viku :/ Hún sagði að sennilega yrði ég mjög hás og gæti átt í veseni með að kyngja :/ Ég sem skráði mig í skólann í sumar ....hefði átt að bíða eftir deitinu við dr Tauga :/

Annars var ég að tala við Möggu mína áðan ....við vorum að ræða um af hverju fólk er sett inn á geðfeild bara af því ..því langar að vera td appelsína :)

Annars er ég bara ógeðslega þreytt og lúinn . . .

Kveð ykkur í kútinn ..

Inda

Skrifað 26.5.2009 kl. 21:03 af Dekurbarnið

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

24.5.2009

well well . .

Skoða nánar

22.5.2009

Fór hjólandi norður yfir heiðar ...

Skoða nánar

20.5.2009

??

Skoða nánar

16.5.2009

Ætlaði í pásu ..

Skoða nánar

12.5.2009

sumarið er tíminn . .

Skoða nánar

10.5.2009

Ótitlað

Skoða nánar

6.5.2009

Próf og fullt fullt ...

Skoða nánar

4.5.2009

5 ár ...

Skoða nánar

1.5.2009

Ljósmyndir ..

Skoða nánar

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 39
Gestir í dag: 16
Flettingar í gær: 116
Gestir í gær: 26
Samtals flettingar: 368962
Samtals gestir: 109128
Tölur uppfærðar: 19.3.2010 13:04:20

Vafraðu um

Ertu mús eða maður ?

 Mús

 maður

 kona - ég get allt


Sýna niðurstöður

Um mig

Nafn:

Dekurbarnið ...

Afmælisdagur:

29 febrúar....

Heimilisfang:

Vesturbærinn...flyt vonandi í Skagafjörðinn.

Staðsetning:

Reykjavík City...

Faðir:

Alexander...

Móðir:

Hrafnhildur...

MySpace vefsíða:

myspace.com/1450cc

Um:

Ég er ágæt ...

Uppáhalds bíómynd(ir):

Forrest Gump ..

Uppáhalds manneskjur:

Baddi minn ...

Uppáhalds matur:

Hæna ....

Tenglar

eXTReMe Tracker