Time for something ...

Er eitthvað sem meikar sens....??

þankar mínir...

Mínir þankar.....

31.1.2009

ókristilegt ..

Örverpið vaknaði á mjög svo ókristilegum tíma í morgun ...eða 7:20 !! Ungi maðurinn vildi fá brauð með banana og við hjónin vorum svo löt að nenna ekki að standa upp og þjóna drengum svo hann ákvað að redda sér sjálfur ......stoltur kom hann með brauðsneiðina inn til okkar og sýndi okkur brauðið með bananabitum raðað snyrtilega á :)

Ég drattaðist á lappir rétt um kl 10 og lá leið mín í Hafnarfjörð til Sif - við fórum í ræktina og svo fór hún aðeins yfir stærfræðina með mér.

'Eg kom heim rétt um kl 14 og hélt áfram að læra ....tjattaði líka smá stund við Díönnu á skype . . . Baddi minn fór i búð og verslaði kjúkling sem ég eldaði að mikilli snilld.

Baddi fór svo upp í húsnæði - einhver afmælisveila í gangi þar . . .og ég á ekki von á honum heim fyrr en í nótt.

Axel leit hér við áðan - gaman að hitta hann :) Nú liggjum við strákarnir ...Óðinn og Mikki upp í sófa og gónum á Djöflaeyjuna ....ótrúlegt hvað Óðinn er hrifinn af myndinni :)

Á morgun er það ræktin og svo aftur til Sif að læra .....

'Eg kveð ykkur í kútinn ..

Inda

Skrifað 31.1.2009 kl. 23:01 af Dekurbarnið

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

30.1.2009

Vetrardrungi ...

Dagurinn er byrjaður að lengjast aftur - svarta myrkrið í svartasta skammdegið er á undahaldi ...sem þýðir að við þurfum að fara huga á hjólunum okkar .....skita um olíu, hlaða geymanna og setja í gang :)

Alli fór í gær í Útilíf og verslaði sér snjótbretti og allt tilheyrandi .....já stráksi er að stunda heilbrigð áhugamál . . . ekki að krota á veggi:) Hann er líka ferlega duglegur að vakna 6am á morgnanna til að fara í ræktina ...

Í morgun fórum við hjónin saman niður í Laugar og þar hitti ég Önnu frænku ....ég tók ekki nema 40 mínútna brennslu en það er ótrúlegt frá því að segja að ég er að missa um 300gr á dag :) Með þessu áframhaldi mun ég ná settu marki :)

Mikki minn fór með sleðann í skólann því bekkurinn stefndi á Plútó brekkuna og þar skemmtu krakkarnir sér konunglega ....hann kom svo heim og fór með Alex vini sínum á breik dans námskeið :)

Eiki dísel kom hér í hádeginu - auðvitað fékk hann kaffi :) ég fór svo smá að snúast og sótti svo Óann minn á leikskólann ...

Ég hef ekki komið mér í heimalærdóm í dag - en í fyrramálið förum við Sif í ræktina og svo förum við aðeins yfir stærfræðina ...

Annars er bara allt gott að frétta svo ég kveð ykkur í kútinn ..

Inda

Skrifað 30.1.2009 kl. 21:01 af Dekurbarnið

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

29.1.2009

fjármál og húsabyggingar ..

Anna mín ...þar sem ég stefni hvorki á að vera fjármálaspökulant eða húsasmiður þá þá hef ég ekkert við algeblu að gera ....ég þarf ekki stærfræði til að sálgreina fólk :)

Gærdagurinn var nokkuð róelgur - lærði helling og hékk hér heima. Gissur og Elva komu hér ..þau voru að ganga frá eignarskiptasamningnum á íbúðinni og þurftu votta ....

Ég gerði verkefni í íslenskunni ....ætla að skila því inn fyrir helgi og líka sálfræði ritgerðinni sem ég smíðaði í vikunni.

Ég er búin að taka ræktina alvarlega undanfarið ...nema ég fór ekki á þriðjudaginn:( Enda er ég loksins farin að léttast og vonandi verð ég búin að ná settu marki fyrir miðjan febrúar :) En Magga beilaði í morgun . . .hún sagðist hafa runnið á rassgatið fyrir utan WC í morgun og meiddi sig eitthvað ....aumingja Magga mín :(

Dagurinn í dag fer í sjúkraþjálfun, lærdóm, tiltekt og fleira ....svo fer ég til Sif í kvöld og við ætlum að halda áfram að berja stærfræði inn í hausinn á mér ......ég viðurkenni að ég finn til með Sif því ég er ekki skærasta peran þegar kemur að stærfræði og það auðveldar ekki fyrir að ég hef ekki snefil af áhuga á henni :(

Annars er ég bara nokkuð góð svo ég kveð ykkur í kútinn ..

Inda

Skrifað 29.1.2009 kl. 10:57 af Dekurbarnið

Bein slóð á færslu

6 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

27.1.2009

Stærfræði my ass ...

Skoða nánar

26.1.2009

Mánudagur ..

Skoða nánar

25.1.2009

Niður á tjörn ..

Skoða nánar

23.1.2009

under pressure

Skoða nánar

22.1.2009

það fauk aðeins í mig ...

Skoða nánar

18.1.2009

Pipp í bréfalúgu ..

Skoða nánar

16.1.2009

Óborganlegt ..

Skoða nánar

12.1.2009

hvað er að ske ..?

Skoða nánar

11.1.2009

Fíflunum fækkar ...

Skoða nánar

9.1.2009

Dómur kveðinn ...

Skoða nánar

8.1.2009

Bylting ..

Skoða nánar

7.1.2009

Alli minn 15 ára á morgun ..

Skoða nánar

6.1.2009

Lífið er skjalfandi ...

Skoða nánar

5.1.2009

Mánudagur ..

Skoða nánar

4.1.2009

Ótitlað

Skoða nánar

2.1.2009

lúkka eins og feitt villisvín ...

Skoða nánar

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 2
Gestir í dag: 2
Flettingar í gær: 79
Gestir í gær: 33
Samtals flettingar: 369004
Samtals gestir: 109147
Tölur uppfærðar: 20.3.2010 01:11:18

Vafraðu um

Ertu mús eða maður ?

 Mús

 maður

 kona - ég get allt


Sýna niðurstöður

Um mig

Nafn:

Dekurbarnið ...

Afmælisdagur:

29 febrúar....

Heimilisfang:

Vesturbærinn...flyt vonandi í Skagafjörðinn.

Staðsetning:

Reykjavík City...

Faðir:

Alexander...

Móðir:

Hrafnhildur...

MySpace vefsíða:

myspace.com/1450cc

Um:

Ég er ágæt ...

Uppáhalds bíómynd(ir):

Forrest Gump ..

Uppáhalds manneskjur:

Baddi minn ...

Uppáhalds matur:

Hæna ....

Tenglar

eXTReMe Tracker