Time for something ...

Er eitthvað sem meikar sens....??

þankar mínir...

Mínir þankar.....

30.10.2008

Mamma ...taktu byssuna með !!



Í gær þegar ég sótti örverpið í leikskólann sagði hann mér frá því að einn strákurinn hefði verið að stríða sér - ég spurði hvernig ..

Óðinn : mamma, það var strákur að stríða mér !
Ég: nú, hvernig þá?
Óðinn: hann sagði að pabbi ætti enga byssu!
Ég: nú ...gerir það nokkuð til?
Óðinn: jú, hann á að trúa mér, viltu koma með byssuna í leikskólann á morgun svo ég geti sýnt honum?
Ég: uhh ....

Annars er ég búin að vera ansi geðill síðustu dag - en ég sá og fattaði smá núna rétt áðan sem kætti mig óskaplega! Þetta var reyndar svolítið nastý en hverjum er ekki sama - allavega er mér sama:)

Annars hef ég voða fátt að segja svona þannig séð - get hreytt út úr mér svívirðingum og stælum en það mundi hvort eð er ekki skila neinum árangri ..

En ohh boy ....MIG LANGAR AÐ ÖSKRA.

Í fyrramálið er stefnan tekinn niður í Laugar  með Möggu og þegar kem heim mun ég byrja á því að kíkja í heimabankann til að sjá hvað Kaupþing hafi ákveðið að vera rausnarlegur við að skila spariféinu okkar ..

Kveð ykkur í kútinn ..

Inda

Skrifað 30.10.2008 kl. 20:53 af Dekurbarnið

Bein slóð á færslu

5 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

28.10.2008

Brútal lærdómur ha !!

Það var auðvitað að Alli minn þekkti þessa krakka sem lentu í sprengninunni í gær! Allavega einn þeirra mjög vel - strákur sem er í Hagaskóla og hefur margoft komið hér heim. Kurteis og almenninlegur strákur og sýndi af sér góðann þokka - svo ræddi ég við mömmu þessa drengs og þá kemur í ljós að hún á í hinu mesta basli með drenginn og var feginn að stráksi væri kominn í félagsskap við Alla þar sem hann er ekki í neinu veseni og hefur víst góð áhrif á drenginn.

En æ, auðvitað er þetta slæmt ...en þessir krakkar eru enginn smábörn og eiga að vita að gas er stórhættulegt og er ekkert til að leika sér að ...þetta er eins og rússnensk rúlletta. Fyrir utan að ef þau hafa verið að sniffa gas  . . . manni hryllir við tilhugsunina :/

Ég ákvað að setjast niður með Alla og sagði honum ljóta sannleikan um fíkniefni og neyslu þeirra, skaðsemi áfengis og reykinga og hvað gas gerir - kemur manni í gröfina eða á sambýli. Ég er ekki frá því að Alla mínum hafi verið svolítið brugðið en það gerir ekkert til - það er í góðu lagi að hræðast þessa hluti. Ég sagði mömmu þessa pilts að Alexander færi eftir útivistarreglum og færi eftir öllum þeim reglum sem honum eru settar fyrir.

Ég vona líka að Alli minn fái sjokk þegar hann fær að fara í heimsókn til félaga sinns upp á spítala. Þetta er rosalegt - við erum að tala um að það vantar parta af andlitinu á þessum krökkum :/

Annars byrjaði þessi sólahringur ekki vel, Mikki minn vaknaði upp skælandi og fann fyrir sárum eyrnaverk. Ég gaf honum verkjalyf og leyfði honum að kúra hjá mér restina af nóttinni ...Baddi fór svo með hann til læknis og það kom í ljós að hann var með blöðru á hljóðhimnunni og þessu fylgir gríðalegur sársauki . . en ætti að jafna sig á 2 vikum.

Landsbankinn er búin að borga 68% úr sínum peningamarkaðsjóð . . . vona að Kaupþing verði rausnarlegri en þetta!

Annars kveð ég ykkur í kútinn ..

Inda

Skrifað 28.10.2008 kl. 23:12 af Dekurbarnið

Bein slóð á færslu

3 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

27.10.2008

Youre own personal ....

Ég fékk sms í dag frá símanum og í því stóð "BLOGGAÐU" og ekkert meira ...dónaskapur að segja ekki til nafns :)

Komum að norðan í gær - keyrðum í afar góðu veðri og komum áfallalaust heim - komum við á Wilsons pizza og keyptum flatböku ....

Mér fannst fínt fyrir norðan - mér er alveg sama þótt ég sé innikróuð vegna veðurs heima í Seli . . . bara á meðan ég hef pepsí max og batterý í sjónvarpsfjarstýringunni :) En eitthvað er Baddi minn viðkvæmur fyrir að geta ekki farið neitt og segir sér líða eins og rottu í búri svona innilokaður - en rottur eru best geymdar í búri ef þær eru lifandi:)

það var reyndar leiðindarveður allan tímann - mikill snór og hríð allan tímann. Festum bílinn margsinnis - eins og hvað er gott að keyra kvikindið þá er hann ómögulegur í snjó og ófærð enda afturhjóladrifinn og afar þungur og silalegur ...

Dagurinn er búin að fara í tómt rugl - fór reyndar í sund með Mikka í morgun og það er það gáfulegasta sem ég hef gert í dag!

Í fyrramálið lofaði ég mér í handsnyrtingu til Elvu ....já, Inda er að fara módelast með skakka fingurinn :) Ætla svo í ræktina og svitna þar . . fer ein þar sem Magga er vinna.

það er farið að læðast að mér hugmyndir að flytja af landi brott - en hvert? Ekki nenni ég að búa í baunalandi - réttara sagt langar ekki vitund til norðurlandanna en þar sem eiginmaður minn er erfiður í taumi þá efa ég að drasinu okkar verði hent í gám og látið sigla á vit ævintýranna - ég kem honum ekki einu sinni á norðurlandið - það er meira að segja of mikið fyrir hann að stoppa þar í 2 - 3 daga - enda næst ætla ég að fara norður ein með strákanna - Baddi getur verið hér í bænum eins og sannri bæjarrottu sæmir.

Vetrarfríð hjá drengjunum er lokið og stóðið fer í skólann í fyrramálið! Ég verð líka að fara taka mig eitthvað á í náminu ef ég ætla ekki að falla á prófunum í des emoticon

Ég ætla að bíða aðeins og sjá hvernig þetta endar með peningamarkaðsjóðinn áður en ég skrái min í Áfengis og Vímuefnaskólann . . þetta hlýtur að koma í ljós í vikunni eða fyrir mánaðarmót . .

En grámyglan og þokan svífa en yfir vötnum . . . en ekkert sem veldur því að ég fari og hengi mig . . . kemur sér vel að vera skáti ef maður ætlar að framkvæma svoleiðis athöfn ....lámark að kunna binda hnútinn :)

Annars ...ég þyrfti að komast út að hjóla en Hr harley verður ekki á götum Rvk í vetur - þarf að að finna mér eitthvað til að sinna þankagangi mínum í friði!

Annars bara tóm svo ég kveð ykkur í kútinn ...

Inda

Skrifað 27.10.2008 kl. 21:30 af Dekurbarnið

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

23.10.2008

Spyrnt í botninn ...

Skoða nánar

21.10.2008

Grámygla ..

Skoða nánar

19.10.2008

Andleg kreppa ..

Skoða nánar

17.10.2008

Magga mín ...

Skoða nánar

16.10.2008

BlogStuff : ThisRecordIsLocked : is

Skoða nánar

14.10.2008

Fjúkandi ill ...

Skoða nánar

13.10.2008

Boring monday ...

Skoða nánar

12.10.2008

Breska pressan

Skoða nánar

10.10.2008

Ómálefnið uppmálað ...

Skoða nánar

9.10.2008

60% hjá Kaupþing

Skoða nánar

8.10.2008

Útlitið svart ...

Skoða nánar

7.10.2008

Landinn farin til fjandans ...

Skoða nánar

5.10.2008

Sunnudagur ..

Skoða nánar

4.10.2008

3G snilld

Skoða nánar

3.10.2008

Afleggjarinn heim ....

Skoða nánar

1.10.2008

Miðvikudagur ..

Skoða nánar

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 76
Gestir í dag: 19
Flettingar í gær: 79
Gestir í gær: 33
Samtals flettingar: 369078
Samtals gestir: 109164
Tölur uppfærðar: 20.3.2010 21:39:12

Vafraðu um

Ertu mús eða maður ?

 Mús

 maður

 kona - ég get allt


Sýna niðurstöður

Um mig

Nafn:

Dekurbarnið ...

Afmælisdagur:

29 febrúar....

Heimilisfang:

Vesturbærinn...flyt vonandi í Skagafjörðinn.

Staðsetning:

Reykjavík City...

Faðir:

Alexander...

Móðir:

Hrafnhildur...

MySpace vefsíða:

myspace.com/1450cc

Um:

Ég er ágæt ...

Uppáhalds bíómynd(ir):

Forrest Gump ..

Uppáhalds manneskjur:

Baddi minn ...

Uppáhalds matur:

Hæna ....

Tenglar

eXTReMe Tracker