|
Time for something ... Er eitthvað sem meikar sens....?? |
|
þankar mínir...Mínir þankar..... 30.9.2008Einbeittur brotavilji ...þegar Óðinn kom heim úr leikskólanum kom vinur hans og spurði eftir honum og úr varð að hann fékk að fara út að leika ...eða hjóla sko - gegn því loforði að hann færi ekkert í burtu ....ég hef alltaf geta treyst honum, hann hefir lengst farið yfir á næsta granda ... En þegar hann var búin að vera í korter úti fór ég að kalla á hann og ekkert svar barst né koma hann hjólandi á gula hjólinu sínu á móts við köll móður sinnar ....hmm!! 'Eg sendi Alla af stað að leita að stráksa og frumburðurinn fann örverpið út í KR!!!! Þegar örverpið kom heim og þurfti að svara til saka með þetta athæfi að stinga svona af var hann sakleysið uppmálað og sagði að þetta væri allt fætinum á sér að kenna ....það var jú sko ...fóturinn sem hjólaði út í KR ekki hann - hann ætlaði ekkert að fara þangað en fóturinn var óþekkur Annars bara þolanlegur dagur - byrjaði daginn með Möggu minni í ræktinni og fór svo heim og við hjónin tókum Magnuminn í gegn ....þrifum hann hátt og lágt og bónuðum kerruna ... Á morgun er það nudd, læknir með Mikka að koma vörtu fyrir kattarnef, keyra hann á karate æfingu og sennilega neyðist ég til að líta á lærdóminn ....þar að segja ef ég nenni - en ef einhver vill líta í kaffi þá fagna ég því :) Annars fátt títt .... Með því kveð ég ykkur í kútinn ... Inda 29.9.2008Holy Mary og öll hennar vandamál ...Ef þið hafið áhuga á að hlægja ykkur máttlaus þá er ykkur boðið í heimsókn til mín - Inda er í slæmu TS kasti núna og er bókstaflega grátlega hlægileg ...þótt þetta sé ekki á nokkurn hátt fyndið :/ En allavega ....ég fór án Möggu minnar í morgun í rætina! Leiðist alveg ógurlega að fara án hennar og það á að bæta úr því í fyrramálið ....verður gaman að sjá TS syndromið flækjast á brettinu :) Fórum í dag, sóttum Mikkann í skólann ....brunuðum og keyptum vetrartúttur með nöglum á Magnuminn ....já Inda vill nagla undir afturhjóladrifna flekann sinn og ljái mér hver sem vill :) En á nöglum vil ég keyra ....skítt með svifryksmengunn og óhljóð :) Fór líka í svaðilför í Krónuna í dag - of mikið fyrir mig og get ekki talað um það einu sinni ...ég sver það - það er fátt verra en að fara í innkauparleiðangur ... Annars er stefnan tekin á norðurlandið næstu helgi - Hjalti og spússa hans eru að fara gifta sig og hver vill missa af því? :) Var að sjá stöðueinkanir hjá Alla á Mentor ...ég veit ekki hvað hefur komið fyrir drenginn ...ekkert undir 6 !! Annars fátt títt ....svo ég kveð ykkur í kútinn !! Inda 28.9.2008Sofa sofa ...Ég á að vera farin að sofa en get ekki sofnað ...sakna manns og barna - er ekki vön að sofa ein í stóra rúminu mínu og kann ekki við að biðja unglinginn að koma og kúra hjá mömmu gömlu:) Flettingar í dag: 70 Gestir í dag: 19 Flettingar í gær: 79 Gestir í gær: 19 Samtals flettingar: 369151 Samtals gestir: 109183 Tölur uppfærðar: 21.3.2010 21:28:36 |
Vafraðu umEldra efni Um mig Nafn: Dekurbarnið ...Tölvupóstfang: inda(hjá)simnet.isAfmælisdagur: 29 febrúar....Heimilisfang: Vesturbærinn...flyt vonandi í Skagafjörðinn.Staðsetning: Reykjavík City...Faðir: Alexander...Móðir: Hrafnhildur...MySpace vefsíða: myspace.com/1450ccUm: Ég er ágæt ...Uppáhalds bíómynd(ir): Forrest Gump ..Uppáhalds manneskjur: Baddi minn ...Uppáhalds matur: Hæna ....Tenglar
|