|
Time for something ... Er eitthvað sem meikar sens....?? |
|
þankar mínir...Mínir þankar..... 27.3.2008Helgin nálgast og sorgin knýr að dyrum ...Sá skelfilegi atburður átti sér stað í morgun að dóttir hans Simma í Héraðsdal lést í morgun ....það er búið að vera bíða eftir þessu í nokkra daga og nú er það búið. Ég votta aðstandendum og litlu drengjunum hennar samúð mína. Ég vaknaði í morgun og varð ringluð þegar ég leit á klukkuna .....það stóð 00:39 á henni og Inda var ekki alveg að fatta þetta ....heyrðu þá var ég víst búin að láta klukkuna snúsa svo lengi að Baddi fékk nóg og sló út rafmagninu á herberginu til að þagga niður í klukkunniJ Ég fór með tölvugarminn hans Badda míns til Hannesar í viðgerð ....og þaðan lá leið mín í Krónuna .....eins og hvað mér þykir nú gaman að verlsa í matinn ......af hverju getur ekki verið jafn gaman að versla í matinn eins og að versla td í vinkonu minni Victoriu Secret?? Skil þeta ekki ... Ég náði að læra smá í dag ...ég hef ekki litið í skólabók síðan fyrir páska og ég er að fá í magann yfir prófunum sem verða í mai :/ .......próf er ekki mín sterka hliðL Unglingurinn á heimilinu er búin að vera alveg óður hér í dag .....hann er að sálast úr tilhlökkun og getur ekki beðið eftir því að komst í sveitina með Óðni ....þeir ætla austur í Þykkvabæ og þenja hjólin sín þar um helgina J ....verður ábyggilega svakalega gaman hjá þeimJ Mikki minn blómstar í skólanum og líður vel ...það er fyrir öllu J Hann er búin að vera leika við vini sína non stop síðan við komum að norðan ....fór í afmæli á þriðjudaginn og allt að gerast .....Óðinn minn er alsæll á leikskólanum með Lóu og í dag minnti hann mig aftur á þá staðreynd að hann ætlar að giftast Lóu þegar hann verður stór J Ég kveð ykkur í kútinn ..... Inda 26.3.2008Ak/RvkÞað var þreytt Inda sem vaknaði við klukkuna kl 6:50 í morgun ......Inda átti að vera mætt út á flugvöll 7:15 ....ég settist á rúmstokkinn skelfilega þreytt og þegar hugsanir á borð við "æhh fokk it" fóru að herja á huga minn ákvað ég að standa á fætur og haska mér í föt áður en ég léti undan og héldi áfram að sofa J Flugið var leiðinlegt eins og öll flug ...guð sé lof að innanlandsflug eru stuttJ Hjalti kom og sótti mig á völlinn og keyrði mig heim til sín þar sem Freydís beið eftir mér .....ég stal svo bílnum þeirra upp á spítala og ekki tók gáfulegt við mér þar ....alveg eftir minni heppni þá bilaði röntgenmyndartækið og ég beið og beið og beið og loksins komst tækið í lag og ég var sett fremst í röðina svo ég mundi ekki missa af fluginu heim. Ari bæklunarlæknir fyrir norðan varð hissa þegar hann leit á fingurinn á mér .....las yfir honum dauðadóminn og sagði mér að fara í mál við LSPL Það er víst minnsta mál að rétta fingurinn .....en það er komin svo mikil rýrnun í fingurinn og húðin á honum skemmd að hann taldi fingurinn ekki þola aðra aðgerð en vildi samt fá mig til sín aftur í haust og endurmeta stöðuna en var þó ekki bjartsýnnL .........og til að kóróna allt saman þá neitar drengstaulinn sem braut á mér fingurinn allri sök svo nú er verið að hóa saman vitnum. Undarlegt að neita sök þegar hann VEIT að hann lenti í slagsmálum á þessu balli, veittist að gæslumönnum ....var snúinn niður og færður á lögreglustöðina í járnum!! Við heimkomu fór ég rakleiðis á deit við Dr Sigurð Blöndal sem skar úr mér gallblöðruna ....allt á að vera í lagi þar .....umframloftið í kroppnum er á hraðri útleið og skurðirnir líta vel út .....ég hitti líka Raj í Domus .....voða gaman að hitta hannJ Skólinn byrjaði í dag og allt gekk velJ Óðinn er líka farin að fara á leikskólann og var að sjálfsögðu alsæll að hitta Lóuna sína J Þreytt kveð ég ykkur í kútinn ... Inda 24.3.2008Hjólin heim ...Lítil hetja er fallinn frá ....hann Huginn Heiðar er látinn eftir harða baráttu við mikil veikindi ....ég votta aðstandendum litla drengsins alla mína samúð. Frumburðurinn fór í dag með vasana fulla af peningum og keypti sér crossara J Baddi fór með honum að skoða og sækja hjólið og þeir komu sáttir heimJ Baddi er búin að ferja hjólin okkar heim á Öldugrandann svo ef okkur ....og ef veður leyfir þá getum við skroppið út án þess að þurfa sækja hjólin suður í Hafnarfjörð J ....sénsagt Hallarnir eru komnir í hús og nú hlýtur vorið að fara láta sjá sig J Í dag ákvað ég að þetta gengi ekki lengur ....setti Ipodin í eyrun og haskaði mér út í göngutúr til að reyna losna við umframloftið sem er ennþá í kroppnum á mér eftir aðgerðina ....ferlega vont að vera með svona loftL Villi bóndi snigill #2 kíkti hér í heimsókn í kvöld ....gaman að sjá karlinn og Villi .....fáðu þér hjólJ Morgundagurinn fer í smá slökun því miðvikudagurinn verður röff .....vakna eldsnemma og flýg norður á Ak til að fara til bæklunarlæknis og flýg aftur heim í hádeginu .....fer svo til gallblöðurlæknisins seinna um daginn .....+ strákarnir eru að byrja í skólanum aftur á miðvikudaginn og þá dettur allt í rútínuna aftur ..... Sif ...hvað er að frétta af Kusu gömlu? Kveð ykkur í kútinn ... Inda Flettingar í dag: 87 Gestir í dag: 12 Flettingar í gær: 119 Gestir í gær: 24 Samtals flettingar: 367909 Samtals gestir: 108875 Tölur uppfærðar: 11.3.2010 11:09:01 |
Vafraðu umEldra efni Um mig Nafn: Dekurbarnið ...Tölvupóstfang: inda(hjá)simnet.isAfmælisdagur: 29 febrúar....Heimilisfang: Vesturbærinn...flyt vonandi í Skagafjörðinn.Staðsetning: Reykjavík City...Faðir: Alexander...Móðir: Hrafnhildur...MySpace vefsíða: myspace.com/1450ccUm: Ég er ágæt ...Uppáhalds bíómynd(ir): Forrest Gump ..Uppáhalds manneskjur: Baddi minn ...Uppáhalds matur: Hæna ....Tenglar
|