Time for something ...

Er eitthvað sem meikar sens....??

þankar mínir...

Mínir þankar.....

28.2.2008

29 febrúar og ég á afmæli :)

Eftir tæpar 30 mín verð ég 8 ára ....

Tók mig heil 32 ár að ná 8. afmælisdeginum J

Kaffi og kökur á línuna í kvöld ....

Hlakka til að sjá ykkur J

Kveð ykkur í kútinn ...

Inda

Skrifað 28.2.2008 kl. 23:31 af Dekurbarnið

Bein slóð á færslu

18 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

27.2.2008

Blöðruvesen ....

Undur og stórmerki gerast ....haldið þið ekki að það sé búið að finna hvað er búið að vera hrjá mig sl árið ...!! Eins og margir vita er ég búin að vera kljást við hitavellur, magaverki, ógleði og allskonar vesen ....Inda fór til dr á mánudaginn (eins og svo oft áður) og sagði farir sínar ekki sléttar og tjáði hr Dr að nú væri tími til komin að finna vandamálið og útrýma því ....og eftir mikið spjall, þukl og spöklreringar ákvað Dr Páll að senda mig í ómskoðun á gallblöðru sem ég svo fór í ...í morgun og viti menn ......bölvuð blaðran er stútfull af steinum ...svo það var hringt ákút í Dr Pál sem svo sendi mig í blóðprufu og nú er ég komin á forgangslista í aðgerð ....en það verður samt að bíða þar til það er búið að ferma Alla minn .....get ekki staðið í svona veseni rétt fyrir fermingu og svo má ekki gleyma því að ég er að fara til Edenborgar í næstu viku svo ......ekkert vesen.

Ég hrópaði af gleði minni þegar pósturinn kom inn um lúguna í dag .....haldið þið ekki að felgan sem villtist til Írlands sé ekki komin til landsins ....þannig að Magnuminn fer á vetrartútturnar á morgun og loksins verður hægt að nota bílinn J En ég skal líka lofa ykkur því að þetta verður síðasta hretið á þessum vetri .....og það er bara af því að bíllinn minn verður komin á nýjar blöðrur ....

Heyrði í Hegu áðan .....ohh ég er bókstaflega að kafna úr öfund ....hún og Jói ásamt fleiri liði er að fara í hjólaferð til Florida .....svo heyrði ég í henni Díönnu líka í dag og kjaftaði heillengi við hanaJ

Annars fátt að frétta, strákarnir mínir eru hressir og kátir og allt í gírnum .....

Ég hef engar fleiri dramatískar fréttir af deginum í dag að færa svo ég kveð ykkur í kútinnJ

Inda með bilaða gallblöðru ....

Skrifað 27.2.2008 kl. 22:40 af Dekurbarnið

Bein slóð á færslu

5 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

26.2.2008

Ekki rugga bátnum ...

Knús á ykkur kæru vinir ....alltaf hægt að stóla og treysta á stuðning frá ykkur og kæra Svanfríður frænka ...takk fyrir hringinguna, það kætir mig alltaf að heyra í þérJ Annars er allt í blóma fyrir utan þetta mál sem við stöndum í .....en málið er að það sem fer upp kemur alltaf niður aftur, ef þú gefur af þér slæma hegðun þá færðu til baka slæma hegðun og ef þú kemur illa fram við aðra þá færðu bjarnargreiðann launaðan ...þetta er bara lögmál sem hver full geðfrískur einstaklingur á að vita. Ekki rugga bátnum nema þú sért viss um að þú þolir ölduganginn J .....ég er stútfullur viskubrunnur eins og þið kæru lesendur lesið .....þú líka ágæti nágranniJ

Ég var að reyna hringja í Sifina mína í dag og það kom alltaf eitthvað asnalegur hringisónn og Sif svaraði ekki .....svo fékk ég sms frá henni þar sem hún sagðist vera á námskeiði í London ....væri ég til í að vera þarJ

Pabbi skutlaði Alla mínum og nokkrum vinum hans upp í Bláfjöll í dag og guttinn er ekki ennþá komin heim .....ein mamman sækir þá á rútuna kl 21J Mér finnst frábært hvað hann er að fíla sig á skíðum strákurinn ....hann er þó allavega að stunda heilbrigt áhugamál ....stundar ekki að selja graffpenna í skólanum og krota á veggi eins og óuppalinn vargur.

Ég sótti fermingarmyndirnar af stráknum í dag og þær eru bókstaflega æðislegar ....ég mæli hiklaust með henni Hörpu Hrund ljósmyndara og ég sé ekki eftir að hafa keypt stæðsta albúmiðJ

Ég loksins hafði mig í að klára lærdóminn fyrir síðustu viku, það er búið að vera svo mikið að gera að ég hef ekki haft tíma til að líta í bókL En ég er búin að vinna það upp og er á góðu róli ....

Ég er farin að sjá það að ég þarf að vera harðari við hana Möggu á morgnanna þegar ég hringi og vek hana ....hún segist vera vöknuð og lofar að fara á fætur en hvað svo ....Inda bíður og bíður niður í Laugum eftir henni af því hún getur bara ekki vaknað á morgnannaJ Ég var nærri dauð úr kulda í morgun og rassinn á mér var nánast orðin mosavaxinn við stólinn ég var búin að sitja svo lengi og bíða eftir henni Margréti minni .....

Anna Málfríður nappaði mig á msn í dag og sagði að hún og Dagrún heimtuðu afmælisköku á föstudaginn ......jú, Inda verður 8 ára þann 29 febrúar og í tilefni þess verður kaffi og kökuboð hér á Öldugranda 5, föstudaginn 29 feb kl 21 ........og ef þér þykir ögn vænt um mig þá er þér boðiðJ Ég á þennan agalega fína sófa núna sem ég get boðið upp á sæti í .....en blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðirJ

Sátt við flesta kveð ég ykkur í kútinn ....

Inda

Skrifað 26.2.2008 kl. 20:38 af Dekurbarnið

Bein slóð á færslu

11 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

25.2.2008

Allt að fara fjandans til ....og verði þeim að góðu!

Skoða nánar

25.2.2008

BlogStuff : ThisRecordIsLocked : is

Skoða nánar

24.2.2008

BlogStuff : ThisRecordIsLocked : is

Skoða nánar

21.2.2008

Lífið er eins og konfektmoli ....

Skoða nánar

20.2.2008

á að vera læra ...

Skoða nánar

19.2.2008

4 ára ....

Skoða nánar

17.2.2008

Helgin búin ...

Skoða nánar

15.2.2008

föstudagur ...

Skoða nánar

14.2.2008

blehh

Skoða nánar

11.2.2008

Þreyttur Hansi ...

Skoða nánar

10.2.2008

Sunnudagur ...

Skoða nánar

6.2.2008

Læra, lesa, skilja .....

Skoða nánar

3.2.2008

3. feb

Skoða nánar

2.2.2008

Lói minn ...

Skoða nánar

1.2.2008

Helgin framundan ....

Skoða nánar

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 73
Gestir í dag: 30
Flettingar í gær: 116
Gestir í gær: 26
Samtals flettingar: 368996
Samtals gestir: 109142
Tölur uppfærðar: 19.3.2010 23:37:52

Vafraðu um

Ertu mús eða maður ?

 Mús

 maður

 kona - ég get allt


Sýna niðurstöður

Um mig

Nafn:

Dekurbarnið ...

Afmælisdagur:

29 febrúar....

Heimilisfang:

Vesturbærinn...flyt vonandi í Skagafjörðinn.

Staðsetning:

Reykjavík City...

Faðir:

Alexander...

Móðir:

Hrafnhildur...

MySpace vefsíða:

myspace.com/1450cc

Um:

Ég er ágæt ...

Uppáhalds bíómynd(ir):

Forrest Gump ..

Uppáhalds manneskjur:

Baddi minn ...

Uppáhalds matur:

Hæna ....

Tenglar

eXTReMe Tracker