|
Time for something ... Er eitthvað sem meikar sens....?? |
|
þankar mínir...Mínir þankar..... 5.2.2010Velferðarkerfið okkar góða ...Það er heldur þungt í mér ...ég hef verið afar slæm í Dystoniunni síðan fyrir áramót! ég loksins komst í Botox til Finnboga taugalæknis fyrir viku síðan og hitti svo hinn taugalækninn minn í dag . . . full vonar að hún hefði einhverja lausn handa mér en svo var nú aldeilis ekki! Það sem var og er í boði fyrir mig er að tvöfalda lyfjaskammtinn minn með því að taka bæði kvölds og morgna ...ég sló þeirri snilldarhugmynd út af borðinu strax því ég get ekki með nokkru móti leyft mér að liggja sofandi allan sólahringinn . . ég er að reyna baksa við skólann, sjá um þarfir og uppeldi á 3 börnum og halda heimili! Lausn nr 2 var að Inda skellti sér bara á þunglyndislyf sem ég afþakkaði pennt líka! Þunglyndislyf taka ekki spasmann sem lætur nánast alla vöðva í líkamanum krullast algjörlega óumbeðnir ...ég þarf enginn andskotans þunglyndsilyf ...ég þarf lausn á vanda mínum. Annar læknir sem séð hefur um mín mál vill senda mig erlendis í aðgerð ...en til þess að það sé hægt verða tauga og skurðlæknar að kvitta upp á það og þar sem Ísland er á hausnum þá er það fráleitt að ég geti nýtt mér þessa lausn! Ég verð að sætta mig við að vera Botoxuð í drasl ....ég segi það satt ég veit ekki hvernig fólki dettur til hugar að nota Botox til fegrunaraðgerða ....þetta efni er viðbjóður! Í dag fór ég til tveggja lækna ....báðir þessir læknar voru uppfullir af vorkunn í minn garð og vildu allt fyrir mig gera ....vandinn er sá að þeir færustu eru búnir að gera það sem þeir geta og þá er það síðasta sem er gert í stöðunni ...að bjóða mér geðlyf til að létta á andlegu álagi! Ég viðurkenni alveg að geðið í mér hefur oft verið betra ....en hver væri ekki orðin geðveikur í þessu ástandi? ég er búin að vera með nonstop spasma í baki, upphandlegg, hálsi, koki, lendarvöðvum og öðrum lærvöðva! Og ég spyr ...hvernig geta þunglyndislyf stoppað af spasmann?? Já nei takk ....ef ég væri þunglynd þá tæki ég þunglyndislyf! Félagi Badda sem er í Hollvinafélagi Grensás benti mér á læknastöð út í USA ....ég fór að skoða málið og þar er sérstök læknastöð fyrir Dystoniusjúklinga. Þar er boðið upp á meðferðir sem eru að skila góðum árangri hjá fólki í minni stöðu en gallinn er sá að þetta kostar 5 - 6 milljónir ein svona meðferð og þótt ég sé ekki fátæk þá á ég ekki 5 milljónir í þetta. Pælið samt í þessu ....á 3 mánaða fresti er dælt í mig Botoxi sem kostar 600.000. - semsagt 2,4 milljónir á ári af skattpeningum landans í líkama minn . . . og það er ekki einu sinni að skila árangri ...ætli ég sé ekki búin að fá Botox fyrir andvirði 6 milljóna ef ekki meir síðan ég fékk mína fyrstu inndælingu . . . bara í Botox kostnað og svo bætist á lyfjakostanður sem er stjarnfræðilega hár! Undarlegt að ríkið geti borgað árangurslausar og sársaukafullar meðferðir en geta ekki sent í meðferð yfir hafið ... Mig langar til að grenja yfir þessu ef ég á að vera hreinskilin ... 31.1.2010..og þá stundi Mundi !!....þetta er nóg - þetta er nóg! Well well ...hvað skal segja en ekki þegja:) Á föstudaginn fór ég í jarðaför ...hann Jónas hennar Gunnu litlu lést skyndilega! Ömurlegt :( Hverkonar illska og réttæti er að hrifsa mann og föður frá konu og börnum? Mikið finn ég til með þeim ... Skólinn er byrjaður og Inda þarf að fara hysja upp um mig ...nú er það lögfræði, stærfræði (once again) Íþróttir og tölvugreinar og vélritun ... Egili, Sævar og Gullý komu hér í mat í gærkvöldi ...voða gaman :) Mikki fékk 2 næturgesti og Óðinn nánast flutti til vinar síns um helgina svo það er búið að vera mikið að gera ... Ég fór líka á deit við dr Tauga á föstudaginn og fékk vænan skammt af Botox ...ég fékk líka niðurstöður úr kyngingamyndinni og það kom bersýnilega í ljós raddbandavesen! Nú er að bíða og sjá hvort Anna læknir komi heim frá Svíþjóð með gáfulegar lausnir ætlaðar mér .... Ég er búin að vera djöful slæm í augum síðustu daga og sennilega verð ég að ath hvað er langt síðan ég fékk Botox í augun og panta tíma ef það eru liðnir 3 mán . . Rúnar og Hemmi litu hér við í dag og var þeim fóðrað á vöfflum, sultu og rjóma .....Þóra kom líka . . . mikið hlegið við eldhúsborðið í dag :) Ég er öfundsjúk út í Möggu ...hún fór í gær og keypti sér geðveika þvottavél :) Þið sem mig þekkið vitið að ég er forfallinn þvottavélakaupssjúklingur :) Alli minn er búin með fyrrihlutann á bóklega námskeiðinu vegna æfingaleyfis á bíl ...hann á eftir að taka einn tíma í viðbót hjá Njáli og svo er hann tilbúin í æfingaaksturinn :) Annars er fínt að frétta ....allt við það sama nema núna byrjar geðveikin aftur þar sem skólinn er byrjaður :S Ég kveð ykkur í kútinn .. Inda 24.1.2010Í dag .. .í dag á karl föður minn afmæli ....nú er hann skriðinn á sjötugs aldurinn! Í dag á líka Sifin mín afmæli ...en hún er ung ....við ræðum ekki aldur kvenna hér og það er nóg að segja að hún sé ung ...ennþá allavega, til lukku með daginn kæra mín :) Í gærkvöldi skelltum við okkur í veislu til Gasa og frú :) jú hann Gasi átti fimmtugsafmæli á föstudaginn og gekk að eiga hana Brynju sína svo ástæða var til að fagna :) Bráðhugguleg ....Baddi og Eyþór sáu um tónlistina .... ![]() ....Og Gasi neyddur til að taka lagið :) Ég segi nú samt að Gasi ætti ekki að leggja söng fyrir sig :) Í morgun fékk ég símtal frá Ástralíu ......Guðrún amma hringdi og lét hún vel af sér. Alli er byrjaður að vinna hér út í Hagkaup og að auki er hann farin að læra á bíl, strákurinn stendur sig vel og þarf ekki nema 4 ökutíma og fara í ökuskólann næstu helgi ....þá getum við sótt um æfingaleyfið fyrir hann ... Síðasta vika var ansi strembinn .....ljúfur drengur lagði leið sína til dauðans, frá konu og börnum. Mikið óskaplega finn ég til með þeim! Gunna mín ef þú læðist hér innn þá veistu að ég hugsa til þín og er einu símtali í burtu .. Skólinn byrjar í næstu viku ....svo það er best að dusta rykið af heilasellunum! Annars er fátt títt ... Kveð ykkur í kútinn .. Inda Flettingar í dag: 98 Gestir í dag: 19 Flettingar í gær: 188 Gestir í gær: 28 Samtals flettingar: 362087 Samtals gestir: 107982 Tölur uppfærðar: 9.2.2010 14:54:08 |
Vafraðu umEldra efni Um mig Nafn: Dekurbarnið ...Tölvupóstfang: inda(hjá)simnet.isAfmælisdagur: 29 febrúar....Heimilisfang: Vesturbærinn...flyt vonandi í Skagafjörðinn.Staðsetning: Reykjavík City...Faðir: Alexander...Móðir: Hrafnhildur...MySpace vefsíða: myspace.com/1450ccUm: Ég er ágæt ...Uppáhalds bíómynd(ir): Forrest Gump ..Uppáhalds manneskjur: Baddi minn ...Uppáhalds matur: Hæna ....Tenglar
|